föstudagur, janúar 04, 2008

Gleðilegt árið!

Ég vona að allir hafi átt gleðileg jól í faðmi fjölskyldu, vina eða hvar sem þið voruð yfir hátíðirnar.
Ég sendi ykkur öllum mínar bestu óskir um gleðilegt nýtt ár með þökk fyrir óteljandi góðar stundir á liðnum árum. Sérstaklega hittinginn þann 16.júní síðastliðinn. Ég vona bara að það vanti engan í hópinn þegar við hittumst eftir fjögur ár.
Þeir sem detta hérna inn mega endilega segja af sér fréttir.
Ég verð áfram í HÍ á vorönninni. Allir velkomnir í kaffi á Eggertsgötunni ef þið eigið leið í borgina, sláið bara á þráðinn ;)

Og munið svo bara.... :

"Því hversu svo sem mönnum finnast,
fjöllin há ber hins að minnast,
sem vitur maður mælti forðum,
og meitlaði í þessum orðum,
að eiginlega er ekkert bratt...
aðeins mismunandi flatt."

miðvikudagur, september 19, 2007

Hittingur

Okkur Erlu datt í hug að hafa bekkjarpartý/hitting hérna í borginni við tækifæri.
Við erum alveg nokkur stödd í höfuðstaðnum og ef einhverjir sem eru það ekki dags daglega verða það fyrir tilviljun væri það náttúrulega bara enn betra.
Væri gaman að heyra hvernig fólk tekur í þessa hugmynd og hvenær það væri þá best að hrinda þessu í framkvæmd.

kærlig hilsen,

sirrý

sunnudagur, ágúst 26, 2007

Haustplön?

Hvað ætlar fólk að gera í vetur?
Fleiri óléttir?

Ég er að fara í dönsku í HÍ... Hildigunnur, Erla og Elli verða líka í HÍ... fleiri?

miðvikudagur, ágúst 01, 2007

miðvikudagur, júní 20, 2007

Takk fyrir síðast!

Jæja krakkar mínir,
hversu gaman var þetta?!

Mig langaði bara að segja takk fyrir ótrúlega góða skemmtun og að ég er búin að setja inn nokkrar myndir hjá mér á www.sirrysif.central.is Link

góða daga!



sumir hafa ekkert breyst! hahaha!

fimmtudagur, júní 07, 2007

15.júní?

Hér eru meiri upplýsingar um kvöldið okkar... allt saman stolið af öðrum síðum á netinu, ég fría mig allri ábyrð


Aðgangseyrir á dansleik eftir borðhald og skemmtiatriði er kr. 2.500

Veislustjórar
Kristján Kristjánsson og Margrét Blöndal.


18:00
Húsið opnað fyrir gestum – boðið upp á fordrykk


19:00
Gestum vísað til sætis. Borðhald hefst; glæsilegur þriggja rétta kvöldverður. Enn liggur ekki endanlega fyrir hvað boðið verður upp á, en það verður upplýst hér um leið og kostur er.


Aðrir liðir á dagskrá
Hátíðarræða 25 ára stúdents – Ólafur Pétur Pálsson frá Höllustöðum.
Skemmtiatriði – flutt af afmælisárgöngum.
Söngsalur – sungið af innlifun undir öruggri st
jórn og forsöng Hermanns Arasonar.


23:30
Hljómsveitin Í svörtum fötum stígur á svið og leikur fyrir dansi í sal Hallarinnar.

Á efri hæðinni skemmtir Sælusveitin en hana skipa Hermann Arason og Níels Ragnarsson.


Miðnætti
Að venju fá eins árs stúdentar dansgólfið út af fyrir sig klukkan 12 á miðnætti og kasta hvítu kollunum.


03:00
Dagskránni lýkur.


Nú hefur komið upp sú hugmynd að reyna að fá allan árganginn til að hittast í Kjarna og grilla 15.júní. Hvað finnst fólki um það? Ég held að krakkarnir hafi gert þetta í fyrra og tekist mjög vel upp.


Erla hefur boðið okkur að hittast heima hjá henni áður en við förum niður í höll, þar sem hún býr nálægt höllinni og á stærri íbúð en Óskar hugsa ég að það sé betri kostur. Þá þarf Óskar líka ekki að ráðast í það að laga til ;) Hehe. Ég bý líka í sömu götu svo það ætti að vera auðsótt að fá foreldra okkar Erlu til að skutla niðrí höll ef fólk nennir ekki að labba, er orðið of létt eða er á nýjum, dýrum skóm.

Er ekki ágætt að stefna á að mæta í höllina svona 18:30 og hittast heima hjá Erlu svona 17:00? Þá höfum við tíma til að setjast niður og spjalla, drekka eitt hvítvínsglas/bjór/brennivínsstaup áður en við leggjum í hann niður í höll.

koma svo fólk!

þriðjudagur, maí 29, 2007

Júbilering 16.júní !

Fyrir þá (Palla) sem ekki vita hvað Júbileringin er kemur hér útskýring á því;

Þann 16.júní ár hvert hittast afmælisárgangar frá Menntaskólanum á Akureyri og fagna náðum áföngum. Árs, 5 ára, 10 ára, 15 ára, 20 ára 25 ára (þeir sjá jafnframt um allt skipulag hátíðarinnar sem oftast stendur yfir í 3 daga hjá þeim) og svo eldri stúdentar ef þeir kæra sig um.
Við þetta tækifæri taka eins árs stúdentar niður hvíta kollinn (taka s.s. hvíta efnið af húfunni sinni svo hún verður svört) á miðnætti því þar með er ár liðið frá útskrift okkar og við ekki lengur nýstúdentar. Þá er það frá.

Hér eru upplýsingarnar sem ég hef um atbuðinn enn sem komið er. Ég hvet alla til að mæta því þetta verður án efa mjjööööög skemmtilegt. Við munum reyna að koma saman í heimahúsi (Frikki? Þú átt stórt hús) áður en hátíðin byrjar og fara svo saman í höllina. Eftir því sem ég best veit sitja bekkir saman. Mér þætti a.m.k. skemmtilegast ef við sætum saman og vona að það séu fleiri á þeirri skoðun.

Tekið af heimasíðu Bautans; http://bautinn.muna.is/

Panta miða á MA hátíð

Hér er hægt að panta miða á afmælishátíð MA stúdenta sem fram fer í Íþróttahöllinni á Akureyri 16. júní næstkomandi. Athugið að láta vita fyrir 10. júní ef hætt er við pöntunina. Hægt er að senda tölvupóst á bautinn@bautinn.is eða hringja í 462-1818 til að afpanta miða. Ef ekki er látið vita í tæka tíð verður rukkað fyrir miðana.

Miðaverð er kr. 7.500
Verð fyrir eins árs júbílanta er kr. 4.500

Þeir sem óska eftir grænmetisrétti í stað þess sem boðið er upp á af hefðbundna matseðlinum, eða hafa aðrar sérstakar óskir, t.d. vegna ofnæmis, eru vinsamlega beðnir um að hafa samband við Guðmund Karl á Bautanum í síma 462-1818 eða 897-3818, eða með tölvupósti á netfangið gummi@bautinn.is.



Fyrir ykkur sem eruð að velta fyrir ykkur hversu mikið þið fáið fyrir peninginn þá er þetta bara svipað og útskriftin okkar í fyrra, matur, skemmtiatriði og ball. Bautinn sér um matinn og það er bar. Allir að mæta í sínu fínasta pússi ;)

Ég veit að Lísa og Elli koma ekki. Lísa er í London að meika'ða í nýju vinnunni sinni og Elli er á Miami. Það væri gaman að frétta af fleirum, ég vona að sem flestir ætli sér að mæta.

Svo minni ég bara á að umsóknarfrestur í háskóla landsins (flesta a.m.k.) rennur út núna 5.júní svona fyrir þá sem eru enn að hugsa málið. ;) Nú vil ég fá umræðuna í gang, við þurfum að skipuleggja þetta saman.

Sumarkveðjur í Skagafirðinum í bili.