miðvikudagur, júní 20, 2007

Takk fyrir síðast!

Jæja krakkar mínir,
hversu gaman var þetta?!

Mig langaði bara að segja takk fyrir ótrúlega góða skemmtun og að ég er búin að setja inn nokkrar myndir hjá mér á www.sirrysif.central.is Link

góða daga!



sumir hafa ekkert breyst! hahaha!

fimmtudagur, júní 07, 2007

15.júní?

Hér eru meiri upplýsingar um kvöldið okkar... allt saman stolið af öðrum síðum á netinu, ég fría mig allri ábyrð


Aðgangseyrir á dansleik eftir borðhald og skemmtiatriði er kr. 2.500

Veislustjórar
Kristján Kristjánsson og Margrét Blöndal.


18:00
Húsið opnað fyrir gestum – boðið upp á fordrykk


19:00
Gestum vísað til sætis. Borðhald hefst; glæsilegur þriggja rétta kvöldverður. Enn liggur ekki endanlega fyrir hvað boðið verður upp á, en það verður upplýst hér um leið og kostur er.


Aðrir liðir á dagskrá
Hátíðarræða 25 ára stúdents – Ólafur Pétur Pálsson frá Höllustöðum.
Skemmtiatriði – flutt af afmælisárgöngum.
Söngsalur – sungið af innlifun undir öruggri st
jórn og forsöng Hermanns Arasonar.


23:30
Hljómsveitin Í svörtum fötum stígur á svið og leikur fyrir dansi í sal Hallarinnar.

Á efri hæðinni skemmtir Sælusveitin en hana skipa Hermann Arason og Níels Ragnarsson.


Miðnætti
Að venju fá eins árs stúdentar dansgólfið út af fyrir sig klukkan 12 á miðnætti og kasta hvítu kollunum.


03:00
Dagskránni lýkur.


Nú hefur komið upp sú hugmynd að reyna að fá allan árganginn til að hittast í Kjarna og grilla 15.júní. Hvað finnst fólki um það? Ég held að krakkarnir hafi gert þetta í fyrra og tekist mjög vel upp.


Erla hefur boðið okkur að hittast heima hjá henni áður en við förum niður í höll, þar sem hún býr nálægt höllinni og á stærri íbúð en Óskar hugsa ég að það sé betri kostur. Þá þarf Óskar líka ekki að ráðast í það að laga til ;) Hehe. Ég bý líka í sömu götu svo það ætti að vera auðsótt að fá foreldra okkar Erlu til að skutla niðrí höll ef fólk nennir ekki að labba, er orðið of létt eða er á nýjum, dýrum skóm.

Er ekki ágætt að stefna á að mæta í höllina svona 18:30 og hittast heima hjá Erlu svona 17:00? Þá höfum við tíma til að setjast niður og spjalla, drekka eitt hvítvínsglas/bjór/brennivínsstaup áður en við leggjum í hann niður í höll.

koma svo fólk!