Hvað ert þú að fara að gera í haust?
Það er nú stóra spurningin... ég veit hvað einhverjir eru að fara að gera en ekki nærri því allir. Bætum endilega úr því.
Sjálf er ég að fara sem au-pair til Glasgow í eitt ár. Það verður kveðjupartý hjá mér 4.ágúst sem ykkur er öllum boðið í, bara svona nettur hittingur áður en maður fer í bæinn. Ég bý í Heiðarlundi 7i og endilega komið með Carmínur svo fleiri geti skipst á eiginhandaáritunum. ;)
Ég mun svo fljúga suður að kvöldi 7.ágúst og út til Glasgow með fyrsta flugi úr Leifsstöð þann áttunda. Ég verð að passa þrjár litlar stelpur, þriggja, sex og átta ára. Fjóra daga vikunnar vinn ég frá 11:00 - 18:00 og fer svo í enskutíma eitt kvöld í viku. Ég mun skreppa með fjölskyldunni til Spánar í rúma viku í október, því það vill svo heppilega til að þau eiga þar hús. Jólafríið mitt er svo frá 22.des - 3.jan og hef ég í hyggju að eyða því á Akureyri. Þá verðum við klárlega að plana bekkjarhitting, ikke?
Ég vona bara að það fari að koma e-ð inn hérna um það sem fólk er að fara að gera í haust :) Hlakka til að heyra frá ykkur.

<< Home